Hugrún

Er komin heim fyrir fullt og allt (vonandi?) Smelli mér í ritgerðarsmíð í sumarblíðunni hér á klakanum!

miðvikudagur, ágúst 24

Búið í bili

Jæja nú er ég búin með ritgerðina, rúmri viku fyrir skiladag! Við Helgi tókum ágæta törn í ágúst og skrifuðum langt fram á kvöld. Þetta er búið að vera ágætis skemmtun og árið hefur liðið ótrúlega fljótt. Ætla bara að taka mér frí þessa daga því ég byrja í nýrri vinnu 2. september hjá Anza.

Þar sem ég er flutt heim og allt að komast í réttar skorður þá finnst mér ekkert merkilegt hægt að segja hér.

Kveð því í bili.

fimmtudagur, júlí 7

Slapp frá London:-/

Eins og öllum öðrum brá mér við að heyra af hryðjuverkunum í London í morgun. Ég kom þaðan í gærkvöldi, og ef ekki hefði verið fyrir dýrt flug hefði ég ennþá verið þar! Fór meira að segja í gegnum Russell Square og King´s Cross lestarstöðvarnar í gær sem sprungu í morgun... soldið skrítið. Vona að vinir mínir séu í lagi en skilst á LSE að enginn úr skólanum hafi dáið.

Erfiður tími og allt er lamað en ég vona að borgin og fólkið nái sér á strik. Get ekki lýst því hvað ég er fegin að vera flutt frá London fyrir fullt og allt!!!

föstudagur, júlí 1

Allir frá, mér liggur á!!!

... því ég fæ íbúðina mína loksins í dag, eftir tíu mánaða útstáelsi! Er ekki búin að fá lyklana en hóa í flutningsliðið í fyrramálið. Reyndar eru flestir svo "óheppilega" illa fyrirkallaðir að vera í útilegu og geta því ekki hjálpað; meira að segja er Helgi ekki í bænum! Er því ein í kotinu og með fullt af bílum til að velja úr til að flytja dótið okkar í. Má víst ekki kvarta of mikið því við erum ekki með svo mikið af drasli til að flytja því skildum svo mikið eftir í íbúðinni. Og auðvitað væri hægt að bíða með flutninginn þangað til eftir helgi en mér liggur bara svo á!! Æ stelpur, þið skiljið þetta.

Þessi fyrirliggjandi flutningur hefur átt hug minn allan þessa vikuna. Ekki nóg með það, heldur held ég á vit ævintýranna í London á mánudaginn og hef því verið upptekin við að plana búðarrápið og svo framvegis. Reyndar þarf ég að troða inn í dagskrána fundi með kennaranum mínum en það hlýtur að vera hægt, ég er jú svo skipulögð. Þetta verður reyndar stutt stopp og því þarf að nýta tímann sem best. Það er reyndar búið að stinga upp á því að geyma flutninginn í Dynsalina þangað til ég kem aftur frá London, en ég finn á mér að það sé ekki rétta leiðin sko. Laugardagur til lukku, muniði.

Ég hef semsagt ekki verið alveg nógu dugleg þessa vikuna við lærlinginn en þess má geta að ég er langt á undan áætlun þessarar viku. Eins gott því mikið er um mannfagnaði, til að mynda komst ég ekki í sex ára afmæli um daginn, en lét sjá mig í skírn hjá Bergdísi Lilju bróðurdóttur minni, saumó hjá Höllu og útskrift hjá Ellu vinkonu. Til hamingju með níuna, Ella mín!!

Er nú bara nokkuð stolt af að ég sé að skrifa hérna inn, það er sko ekkert sjálfgefið að maður gefi sér tíma til þess þegar maður er á landinu!

föstudagur, júní 10

Frí í Barcelona

Við vorum að koma heim eftir vikufrí í Barcelona. Tek það fram að þetta var menningarferð og við erum því "útitekin" en ekki sólbrún! Skrítið að vera loksins komin á næstumþví-minn-stað eftir nokkurra mánaða flakk á milli staða. Fer svo endanlega á nákvæmlega-minn-stað í byrjun júlí þegar ég flyt aftur "heim" í Dynsalina. Allt dótið mitt er á sama stað í fyrsta sinn í langan tíma og ég hef sko sankað að mér ótrúlega miklu magni af dóti (aðallega fötum og skóm). Þarf líklega að byrja á því að grisja þegar ég kem mér almennilega fyrir.

Við Helgi leigðum okkur litla íbúð í Barcelona og vorum þar í rúma viku. Þó svo að flestir segi að borgin sé alveg æðisleg þá fannst mér þetta nú bara alveg nógur tími. Ég nenni nefnilega ekki að hanga í sólbaði of lengi og við vorum bara orðin of þreytt í löppunum til að ganga meira um og skoða. Við skoðuðum fullt af dóti sem Gaudi hannaði (sem er spænskur arkitekt sem dó á 3. áratugnum) og fann ég meira að segja fyrir smá listabakteríu! Hann hefur hannað rosalega flott hús og garð og kirkju og fleira og við vorum alveg heilluð af stílnum. Hápunktur ferðarinnar var samt að skoða nashyrninginn í dýragarðinum! Alltaf gaman að heilla litlu börnin... en við sáum líka fullt af öðrum skemmtilegum dýrum. En það voru samt vonbrigði að uppgötva hvað allt var orðið dýrt og bara lítið hægt að versla í Barcelona. Mér finnst að allar búðir eigi bara að vera á sama stað, svo maður þurfi ekki að ganga marga kílómetra til að fara í eina búð. Kannski erum við orðin of góðu vön frá Bretlandi... hver veit? Ég keypti mér til dæmis bara tvenna skó! og fannst ekkert varið í skóbúðirnar þarna!!

Vorum svo heillengi á leiðinni heim því við millilentum í London í 8 tíma og týmdum ekki að taka lestina inn í borgina. Vorum heillengi bara að spila á Vellinum og dúlla okkur til að drepa tímann, fórum meira að segja í stutt sólbað úti á grasbala! En vinkona mín í afgreiðsluborði Iceland Express klikkaði ekki frekar en fyrri daginn og rukkaði mig að sjálfsögðu um yfirvigt!! Í þetta sinn voru það bara 6 kíló sem við vorum með saman umfram leyfilega þyngd og hún rukkaði okkur bara um fjögur... hvílík góðmennska í einni sál! Þetta fór nú samt ekkert hrikalega vel í okkur og eftir mikið dæst og púst fórum við bara á barinn og héldum upp á síðasta kvöldið í fríinu okkar.

Við komum svo heim seint að kvöldi og vorum orðin rúmlega þreytt og höfum bara verið að ná okkur niður á jörðina síðan eftir allt þetta ferðalag. Er ekki enn byrjuð á ritgerðinni... en nú er komin helgi og ég er komin í helgarfrí!!!

miðvikudagur, maí 25

Skemmtiferð til Blackpool

Fórum í dagsferð í gær til Blackpool, sem er strandbær rétt hjá Manchester. Planið var semsagt að gera eitthvað skemmtilegt eftir prófin mín, en þar sem það er svo dýrt að fara í kósý helgarferð út á land ákváðum við að taka bara heilan dag í skemmtiferð. Blackpool er lítill bær fullur af skemmtigörðum og spilavítum. Þar er gata sem gæti kallast litla Vegas, og við skelltum okkur auðvitað inn á einn staðinn. Klukkan var hálf ellefu um morgun og það var sorglega mikið af fólki þarna inni – yfirleitt eldra fólk eða fólk sem má minna mega sín – og allir voru að spila í kössunum. Við vorum þarna inni í ca. hálftíma, eða á meðan fötin okkar voru að þorna (því við lentum auðvitað í rigningu sem kom og fór allan daginn), og fórum í þythokkí til að gera eitthvað. Þetta var nú ekki bara rigning heldur líka úði, þannig að regnhlíf gerir ekkert voðalega mikið gagn fyrir buxurnar og skóna. Frekar fúlt að fara á svona stað í rigningu, en svona er lífið. Ég er nokkuð viss um að á sumrin, í sól og hita, þá sé þessi staður miklu skemmtilegri og fallegri, en í gær var þungskýjað og rok og sjórinn var brúnn og slepjulegur. Flestar búllur voru líka lokaðar og greinilegt að aðal ferðatíminn er ekki byrjaður. Við ætluðum líka að kíkja í dýragarðinn og í einhvern voða flottan garð en hættum við út af veðrinu.

Við eyddum svo restinni af deginum í garði sem heitir Pleasure Beach, sem er nokkuð stór garður eða tívolí með rússíbönum og fullt af tækjum. Ég fór meira að segja í stærsta rússíbanann sem fór um allan garðinn, og fer mjööög hátt upp. Ég er sko lofthrædd og er því svakalega stolt af mér:-) Þorði sko ekki í tvö tæki sem Helgi þurfti að far einn í. Um kvöldið fórum við á Kabarett sýningu sem var nú eiginlega ekkert spes, en var innifalin í miðaverðinu þannig að auðvitað nýttum við okkur það. Eftir pizzu og pasta á veitingastað tókum við síðustu lestina heim og vorum frekar þreytt eftir daginn.

Í dag koma svo foreldrar Helga, en fyrst þurfti ég auðvitað að skreppa einu sinni enn til London, til að hitta leiðbeinanda minn fyrir ritgerðina. Hef bara alls ekki komið mér í það að byrja að hugsa um þetta síðasta verk í masternum. Ég á til dæmis rosalega erfitt með að finna upp viðfangsefni fyrir ritgerðir, og tilgangurinn með því að hitta hann er að njörva niður hvað ég ætla að skrifa um því einhvern tímann verð ég að byrja. Ég er svo fegin að vera búin að þessu því núna get ég loksins byrjað að allavega spá í því hvað nákvæmlega ég ætla að skrifa og hvernig! Ég ætla semsagt að skoða hvernig fyrirtæki í ákveðnum bransa á Íslandi eru að sjá til þess að starfsmenn þess fari eftir reglum um viðkvæmar upplýsingar. Byrja samt ekki að vinna í henni fyrr en eftir BarcelonaJ

mánudagur, maí 23

Frí

Nú er lífið loksins farið að komast í réttar skorður á ný. Búin í prófum og búin að rasa út eftir próflokin...

Ég kláraði semsagt síðasta prófið mitt á föstudaginn og tók bara hálfan dag í frí í London. Spásseraði um í sólinni og verslaði nú reyndar eitthvað lítið. Þar sem ég tók lestina fram og til baka þennan dag þurfti ég að vakna frekar snemma þennan morgun, eða kl. 5, og sofnaði því fyrir ellefu fréttir um kvöldið! Á laugardaginn horfðum við á úrslitaleikinn Man.United vs. Arsenal og var stemmningin hér rosalega góð... þangað til Arsenal vann. Fannst nú þeir ekki eiga skilið að vinna þó ég hafi haldið með þeim því United var miklu miklu betri í leiknum. En svona er þetta og þá þurfti fólk hér að drekkja sorgum sínum. Heppilegt að Helgi hélt Eurovision partý og var ótrúlega stillt lið mætt til að fylgjast með sínu landi. Grikkirnir hér tóku þessu öllu með ró og svo virðist sem Eurovision jaðri ekki við trúarbrögð í öðrum löndum en á Íslandi. Viðbrögðin við því að Bretland fékk voðalega fá stig eitthvað voru mjög lítil og fólki stóð slétt á sama! Skrítið...

Við létum svo verða af því í gær og fórum að sjá Stjörnustríð, bara til að vera eins og allir hinir. Fínt að vera búin að þessu, fannst þessi mynd skárri en síðasta mynd samt. En já svona byrjar fríið mitt, rólegheit og kannski soldið verið að fá sér gott að borða... Á morgun förum við til Blackpool, sem er víst skítugasti bærinn hér í Englandi. Þar er víst stór stór skemmtigarður og ekkert annað að sjá... merkilegt, en við ætlum í einhvern rússíbana og svoleiðis. Sjáum til hvernig veðrið verður... Svo ætlum við að taka túristahring í lok vikunnar þegar foreldrar Helga koma í heimsókn. Það er svosem ekkert rosalega mikið að sjá hér, nema risastórar verslunarmiðstöðvar. Á þriðjudaginn næsta förum við svo til Liverpool og ætlum að taka smá túristahring þar áður en við höldum af stað til Barcelona.

þriðjudagur, maí 17

Læti í Manchester!

Ég fékk ekki langa helgi í gær! Fattaði það seint í gærkvöldi að það var annar í Hvítasunnu og þess vegna var enginn á MSN!! Skyldi ekkert í því... jæja en ég vaknaði þess í stað snemma og fór í ræktina! Lærði svo til sex og fór snemma að sofa til að ná upp svefni. En viti menn, það var eitthvað mikið um að vera í Manchester í gær og ég vaknaði bara við læti og óeirðir í nótt. Held að allir séu brjálaðir út af þessum Ameríkana sem er að kaupa Man. United... og það er búist við óeirðum á leik á laugardaginn sem verður því miður ekki hér. Það væri nú gaman að bæta því í reynslubankann; að fylgjast með óeirðum. Reyni bara að horfa á leikinn á næstu krá og halda með mínu liði!

Þessi vika ætlar að verða mjööög lengi að líða því ég er bara að bíða eftir prófinu á föstudaginn. Efnið er líka leiðinlegt (þ.e. tæknilegt, um hönnun á upplýsingakerfum) þannig að ekki skánar það.

Ég keypti svoleiðis köttinn í sekknum þegar ég ákvað að fara til Bretlands í “sólina”! Það er búið að vera skítkalt (líka á þeirra mælikvarða) og rigning og sést ekki til sólar núna. Fengum reyndar gott veður um helgina en ég held að veðurguðirnir séu að spara sólina fyrir sumarið, þegar ég verð ekki hérna. Frekar fúlt... en jú auðvitað er miklu auðveldara að vera inni á bókasafni í svona veðri heldur en í sól og sumaryl...

En já áfram að læra...